Rúnars Guðbjartssonar. sálfræðingur

Selvogsgrunn 7, 104 Reykjavík

Rúnar Guðbjartsson,

sálfræðingur.

Hvað er tilfinningatamning?

Vellíðan byggir á samspili hugar og líkama, og ef við erum að glíma við neikvæðar tilfinningum þá erum við ekki eins líkleg til að ná þeim árangri sem við óskum.

Sú Tilfinningatamning sem ég kenni er á ensku nefnd Rational Emotive Behavior Therapy, þetta er hugræn atferlismeðferð. Mér finnst Tilfinningatamning ná ágætlega kjarnanum í þessu hugtaki. Höfundur hennar er Albert Ellis, hann er bandarískur sálfræðingur og er einn af frumkvöðlum hugrænnar atferlismeðferðar.

En hvað er Tilfinningatamning? Í örstuttu máli þá er Tilfinningatamning fljótvirk aðferð til að takast á við og breyta neikvæðum tilfinningum og stuðla þannig að aukinni vellíðan. Ég þjálfa fólki í að skynja þau órökréttu viðhorf og væntingar sem valda þeim tilfinningalegum sársauka eins og t.d. reiði, kvíða og þunglyndi. Síðan er fólki kennt að rökræða og breyta þessum órökréttu viðhorfum og nota í staðin rökrétt viðhorf sem eru þeim ekki eins skaðleg.

Nú getur einhver spurt, en þurfum við ekki að grafa upp fortíðina til að komast að rót vandans? Að sjálfsögðu erum við samspil af erfðum og uppeldi, en fortíðin er með okkur í formi viðhorfa sem skapa okkur erfiðleika í nútíðinni, hvort sem þessi viðhorf hafa orðið til í æsku eða á síðustu vikum. Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum í dag breytt þeim viðhorfum sem hafa myndast í fortíðinni sem skapa okkur núna tilfinningalegan sársauka.